Eftir gríðarlega spennandi baráttu í stærstu sköðanakönnun síðunnar
til þessa liggja úrslit fyrir. Er orðið á götunni að baráttan hafi
verið blóði drifin, kosningasmölun, úthringingar, sms- sendingar,
auglýsingaherferðir í Ríkissjónvarpi Fezlands og hverskonar högg
fyrir neðan beltisstað til að reyna að klekkja á andstæðingum
sínum.
Þar sem ljóst þykir að Djonsi og Fez hafi beitt vafasömum aðferðum
við að reyna að ná sem bestri kosningu og reyna að ná hylli
stofnenda Leynifélagsins hefur Hæstiréttur Leynifélgsins, skipaður
Gull-limnum og Park, komist að þeirri niðurstöðu að þeirra þátttaka
verði dæmd ógild og marklaus og geta því ekki hlotið titilinn
"Besti varamaðurinn". Þá eru bara 3 þátttakendur eftir og ljóst
þykir að Espen Knudsen hafi hlotið afburða góða kosningu og hlýtur
titilinn með sæmd.
En þar sem ljóst þykir að þessir menn, djosni og Fez, hafi lagt
mikinn metnað í sína kosningabaráttu telur hæstiréttur það ekki
nema sanngjarnt að veita Fez titilinn "Metnaðarfyllsti
varamaðurinn".
Var Fez krýndur við hátíðlega athöfn þar sem hann sæmdur til
titilsins keimlíkt þeim athöfnum þegar menn voru slegnir til
riddara forðum daga nema að í stað sverðs var notaður hinn gyllti
limur Gull-limsins þar sem hápunkturinn varð þegar upprisu var
náð.
Og er hann þar með kominn inn á tíu manna lista yfir þá aðila sem
eru til skoðunar að verða teknir inn í leynifélagið á næstu 5
árum.
En aftur að fundarhöldum kvöldsins...
Var horft á góðan þátt af BL. Mætti Fez þegar þátturinn var u.þ.b.
hálfnaður og að þætti loknum fór fram krýning.
Hreyfimynd kvöldsins; Mr. & Mrs. Smith. Leynifélagið getur mælt
þessari mynd sem ágætis afþreyingu. Jolie kom vel fyrir í þessari
mynd og mælir Leynifélagið sérstaklega með henni.
Mynd kvöldsins: Er að þessu sinni af óskilgetnum syni Feza sem
fannst í útrýmingarbúðum fyrr á þessu ári að planleggja næstu
hryðjuverk samtímans. Honum gengur að sögn og myndum mjög
vel...
Setning kvöldsins: "Við hérna í Leynifélaginu..."
Fez þarna að reyna að koma sér í mjúkinn hjá stofnaðilum sem voru
ekki lengi að sjá í gegnum orðaleik útlendingsins.
Þá er fundi slitið klukkan 01:45 að staðartíma að Dungólum 19 þar
sem hinn leynilegi fundur fór fram í kvöld með áðurlýstum
svívirðingum og meyðirðum að allra hálfu að venju... við bjóðum
nóttina eins og ávallt, kisskiss!